Frábær og nett pressuvél 270° snúningur á kjálka. Vökvatjakkur skilar 32kN. og pressar á 4sek. GETA: 10-108mm rör úr kopar, stál, ryðfrítt, PEX og marglaga rör.
RP 340 er 30% minni og 17% léttari en fyrra módel (RP 330). Mjög langt er á milli þjónustu skoðana eða 42.000 pressanir. Snúruvélin er nú með losanlegu stykki sem setja má 18 v rafhlöðu í staðinn sem gefur notandanum aukna möguleika við ýmsar aðstæður og gerir tækið í raun að tveim tækjum. LED LJÓS er á vélinni sem auðveldar vinnu við léleg byrtuskilyrði. Rafstýrð pressustjórnun eykur skilvirkni og afköst.